stína

sælt veri fólkið;)

27.03.2008 19:02:46 / stina

Bumbubúi;)

Endilega kíkið á  http://barnanet.is/gormurinn ;) jebbs.....ég er komin með bumbubúa....

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.10.2007 17:41:16 / stina

Kíkið á;)

Kerlingin bara komin með myspace;) endilega kíkjið á! myspace.com/stina_thors


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 20:27:11 / stina

Kominn tími til:)

Það er orðið aðeins of langt síðan ég bloggaði seinast. Er ekki beint dugleg í þessu. Það er búið að vera nóg að gera undanfarnar vikur, búnað vera vinna á fullu, og var að keppa um helgina á Ísmótinu í laugardagshöllinni:) Var að keppa í Indola litakeppni.... og haldið þið að kerlingin hafi ekki bara unnið:):):) Það var bara gaman, fékk bikar og 50þúsund króna gjafabréf með icelandair.......jibbbbbbbbíiiiiííí´........ Greyið sasa mín fær ekki frið fyrir mér, þegar hún kom heim í júní missi hún ljósu lokkana daginn eftir komu og núna helgina fyrir brottför fuku lokkarnir sem voru komnir aftur, í burtu...heheheeeh, takk dúllan mín fyrir að vera fórnarlambið mitt;) Svo í gær var helgin enduð með stæl, galakvöld í höllinni:) það má eiginlega segja að það hafi verið ótrúlega gaman (ekki alveg eins gaman þegar ég vaknaði í morgun) vorum öll í þvílíku stuði í gær, segjum bara að það verður ekki drukkið opal aftur.....held ég hafi reyndar komið með þá yfirlýsingu áður en um að gera að ítreka hana;) Svo erum við öll í hárgreiðslunni að fara fá prófskírteinin okkar þarnæstu helgi, komin tími til:) Litli kútur sem er eiginlega orðinn stóri kútur á svo afmæli eftir viku, verða 4 ára... ótrúlegt hvað tíminn líður hratt...áður en ég veit af verð ég orðin kelling;) jæja, er að pæla í að hætta að steipa núna,.... þangað til næst..............

» 6 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 23:28:51 / stina

Frú Kristín;)

Jæja, þá er maður opinberlega orðin frú;) Nei, segi bara svona, er bara kölluð frú þegar fólk er að stríða mér! Finnst orðið Frú hljóma svona eins og maður sé fertugur;)

En allavega, brúðkaupsdagurinn okkar var yndislegur, akkurat eins og ég hefði viljað hafa hann! Ég ákvað að vera soldið gamaldags og gisti hjá múttu og pabba nóttina fyrir brúðkaupið. Vildi ekkert hitta hann fyrr en í kirkjunni. Það var eitthvað svo spennó;) Þetta var eiginlega algjört dekur hjá mér áður en það kom að kirkjunni;) Vaknaði og þá var pabbi búnað fara í bakaríið, fór svo í hárgr. og svo förðun og svo hárgreiðslu aftur, þar voru allar skvísurnar í familyunni saman komnar í hárgreiðslu og make-upi. Bara gaman hjá  okkur. Fór svo heim til múttu og pabba og sat í sólinni og byrjaði að fá stresskast. Veit ekki hvað kom yfir mig, held bara spenningur:) Hefði átt að fá mér gin og tonik með zözu;) Ég var ótrúlega ánægð með allt saman, förðunin var geðveik og hárið þvílíkt flott og kjóllinn rosa flottur (fyrir utan smá brjóstavandamál, double tape-ið virkaði sæmilega þannig að þetta reddaðist svona nokkurn vegin) ,brúðarvöndurinn fullkominn(koss og knús Helga tengdó) bíllinn var klikkaður og ísak stóð sig eins og algjör kóngur í kirkjunni og karlinn minn náttla flottastur. Þetta var svo skrítið, þegar ég labbaði inn kirkjugólfið fannst mér eins og mér væri bara dreyma, þetta var eitthvað svo óraunverulegt eitthvað, ég að gifta mig, pælið í því...athöfnin var svo algjörlega okkar(ef þið fattið hvað ég meina) kiddi sagði ójá og ég sagði jamm og já og kiddi þurfti að rífa slaufuna sem batt hringinn minn af því að þetta var ekki alveg að losna hjá honum, flott handaband, aðeins of langur koss og allir að hlæja, bara gaman:):):):) ótrúlega flott sungið hjá Rannveigu (koss og knús) og presturinn, Sigriður Kristín, æðisleg:) Jamm, semsagt hefði ekki getað verið betra:) Svo fórum við í myndartökuna strax eftir kirkjuna. Hefðum alveg geta verið í 2 tíma í viðbót þetta var svo gaman, hélt reyndar að Kiddi myndi missa mig í sjóinn, það hefði verið svo týbíst;) Tókum semsagt myndirnar í skóginum hjá afa og ömmu í Grænagarði og í fjörunni á Garðarholti, óðum útí sjó á tásunum og Kiddi sýndi þessa snilldartakta í að halda á mér og þykjast missa mig;) Svo fórum við í veisluna þar sem allir biðu okkar:) vorum þvílíkt ánægð með veilsuna og matinn(takk Þórhallur, þú ert snilli) og kökurnar(takk amma Tóta, þú ert best) og veislustjórnina (takk esskan "shane") Við skemmtum okkur allavega rosalega vel og vona að allir hafi gert það líka. Hefði reyndar viljað hafa tíma til að spjalla við alla gestina, kannski of mikill fjöldi og of lítill tími! Fórum svo heim um hálf 4, kom reyndar við á Esso og keypi mér smá í gogginn (fékk smá athygli í brúðarkjól að bíða í röðinni á Esso) svo var farið heim, haldið á mér yfir þröskuldinn og já, ætluðum bara að opna einn pakka en enduðum á því að opna helminginn af öllum pökkunum, vorum að til klukkan sjö um morguninn, að opna pakkana og kjafta sko!!!;)  En já, þetta var alveg ótrúlega gaman, ætlum að endurnýja heitin á hverju ári og halda veislu;) hehehe............Ég vil bara enn og aftur þakka ÖLLUM fyrir alla hjálpina og fyrir að koma og vera með okkur og allar gjafirnar og alla kossana og bara allt saman...KISS KISS KISS KISS KISS KISS ............ ætla að prófa að setja inn nokkrar myndir, en ef það gengur ekki er hægt að ýta á tengiliðnn tengdó (undir vinir) og skoða myndir þar:)

Jæja, ég er að spá í að fara og knúsa eiginmanninn minn (heheh bara skrítið að skrifa þetta) góða nótt , kossar og knús.......

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.07.2007 00:49:21 / stina

ó my

Jæja, ekki á morgun heldur hinn:):):):):):):):):):):):):)

Eða já, á morgun semsagt, vá þetta er virkilega að gerast, ó my

:):):):):):):):):):):):):):):):):):):):):):):):):):):):):):):):):):):):):):)


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.07.2007 17:01:44 / stina

HRUKKUR!!!!

Jæja þá er ég orðin gömul;) er ekki frá því að nokkrar hrukkur hafi komið í nótt......sumir, nefni engin nöfn héldu að ég væri að verða 25 ára í dag, og sumir fá engan köku hjá mér! heheh bara stríða þér krúttið mitt!Ég er búin að fyrirgefa þér;) en allavega er ég núna orðin 23 ára eða eins og maður á að segja 20+  ;) Pælið í því að það er ekki nóg með það að ég sé orðin 23 ára heldur er ég móðir og verðandi eiginkona og bráðum FRÚ...ÓMG...ég er orðin kerling........:):):):)

þangað til næst......


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 14:06:25 / stina

GÆSIGÆS;)

Eruð þið ekki að grínast? Var að vakna núna eftir skemmtilegasta dag lífs míns!!!!!!!!!!! Þessar elskur mínar gæsuðu mig í gær og Ó MY GOD hvað það var suddalega gaman;) Held ég hafi aldrei skemmt mér eins vel og aldrei fengið eins mikla athygli á ævi minni.......hehehehhe... Ég er reyndar í rústi núna, aldrei fengið eins miklar hasperur, get varla hreyft mig, enda þurfa allir brake-arar að passa sig núna;) það sem ég gerði ekki í gær.......össssssssss...... en ég ætla skrifa meira um þetta þegar mér líður ekki eins og puttarnir á mér séu að detta af, það er ekkert smá mikið púl að halda sér uppi á puttunum, ég er nú enginn smá skrokkur;) TAKK ALVEG ÓTRÚLEGA MIKIÐ fyrir daginn i gær gæsaungarnir mínir, ÞIÐ ERUÐ LANG BESTAR;) kiss kisss kiss kiss kiss kiss kiss kiss kiss kiss kiss.........

» 9 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 22:18:49 / stina

:):):):):):):):):):):)

ÉG ER BARA ÁNÆGÐUST Í HEIMI NÚNA!!!! Var að fá sveinsprófseinkannirnar mínar í gær og mér gekk bara vel. Var hæðst í sveinsprófunum :) Ég er bara ánægð að vera loksins búin með þetta allt saman:) og ekki verra að fá svona góðar einkannir:) jæja, varð bara að koma þessu frá mér.:)..híhíhí.....bless í bili


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 00:42:56 / stina

Lífið

Lifðu í núinu. Fjöldi fólks frestar hamingjunni. Það puðar og puðar og lifir skítalífi í þeirri von að þegar einhverju marki sé náð og þetta eða þetta gerist verði það hamingjusamt. En hvað um daginn í dag, núið? Við vitum aldrei hvað við fáum langan tíma í þessu lífi. Hví þá að lifa eins og við séum á einhverri leikæfingu í stað þess að njóta sjálfs leiksins, hvers augnabliks lífsins? Líttu á hvern dag sem heilt líf í sjálfu sér. Lifnaðu við að morgni og kveddu síðan að kvöldi. Það sem er þarna á milli á að skipuleggja sem afmarkaða heild og lifa eftir því. Núið er allt sem þú átt. Fortíðin er liðin og framtíðin ókomin. Hvað sem þú ert að fást við ættirðu alltaf að reyna að njóta út í æsar hvers augnabliks.

(fékk þetta lánað af annarri síðu, finnst að allir ættu að fara eftir þessu)


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 14:18:19 / stina

Jibbí;)

Það er bara erfitt að vakna og koma sér á fætur. Ligg upp í rúmi með tölvuna og kidda steinsofandi við hliðin á mér. Vil ekki líta í spegil! Lít öruglega út eins og ófreskja! komum aðeins of seint heim, er orðin alltof gömul í sona djamm;)hehhehhe;) Útskriftin var semsagt í gær, bara stuð. Fyrst veisla hjá afa í grænagarði, sem var ótrúlega gaman, og svo fórum við niðrí bæ á Hressó til Laufeyjar:) allir í þvilíku stuði þar. held ég hafi fengið sona spennufall eða eitthvað því allt í einu var ég alveg að sofna um 3 leytið. Aldrei verið svona þreytt. en þegar við komum heim um 5-6 var ég allt í einu vöknuð aftur, mjög spes! En já, ég var ekkert smá ánægð með einkannirnar mínar;););););)

Fékk, 9 og 9 og 9 og 9 og 9 og 9 og 9 og svo 10 :):):):):):) Semsagt sjö níur og eina 10:) aldrei fengið svona góðar einkannir, jibbí...........

Varð bara aðeins að monta mig:) en jæja, ætla að koma mér á fætur og ná í sakka litla:) bless í bili:)


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 00:47:59 / stina

Loksins, loksins ;)

Vúhú, er loksins er ég að fara klára hárgreiðsluna:) Búin með öll próf í skólanum en á reyndar aðal prófin eftir, SVEINSPRÓFIN! Búnað ganga bara ágætlega í skólaprófunum. Útskriftin á morgun, smá stress í gangi en ég veit að ég er ekki búnað falla í neinu, bara spurning hvaða einkannir maðir fær:/ Kemur allt í ljós, þannig að ef ég skrifa ekkert um einkannirnar um helgina þá, já, hehehemm....... sjáum bara til:) Held smá veislu í skóginum hans afa, vona að það verði bara gott veður:)

Búnað vera þvílíkt mikið að gera undanfarið, prófin búnað vera á fullu, sá um stofuna í 10 daga, alltaf að fara í brúðarkjólamátun (ómg hvað kjóllinn verður flottur) og allur undirbúningurinn fyrir brúðkaupið alveg að verða búinn, allavega það helsta. Og já, það næsta á dagskrá  sveinspróf, sumarfrí og  brúðkaup:) Bara spennt yfir þessu öllu saman:) Svo er zaza að fara koma heim um mánaðarmótin:):):):):):) Best að fara byrja kæla ölið, tími til kominn að venja hana aftur við einn kaldan, þetta coctail sull er ekkert gott til lengdar;) heheh.............

Er búnað vera baka í gærkvöldi og allt kvöld og svei mér þá ég held að hrærivélin hennar ömmu Stínu (sem ég fékk lánaða) býr yfir einhverjum töframætti:) Það er bara allt saman búnað heppnast ágætlega í bakstrinum sem er alveg lygilegt, því miður erfði ég ekki myndaskapinn í eldhúsinu frá ömmum mínum, en æfingin skapar meistarann;) Svo á maður náttla so góða mömmu sem er búnað vera græja helling fyrir veisluna og sauma á mig, kiss kiss fyrir það mútta;) og náttla tengdó með sína snilldar brauðtertu;)

Jæja, er að pæla í að fara koma mér í háttinn, stór dagur á morgun:) vona samt að enginn steli kökunum mínum af svölunum!!!!!!!! góða nótt


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 22:28:28 / stina

Bara snilld;)

Þekkir þú fínar dömur og alvöru konur í sundur?

Fínar dömur: Ef þú hefur ofsaltað matinn sem þú ert að elda, þá skaltu setja kartöflu í pottinn. Hún dregur saltið í sig.

Alvöru konur: Ef þú ofsaltaðir matinn er það bara assgoti pirrandi.

Fínar dömur: Það er auðvelt að lækna höfuðverk með því að skera límónu í
sundur og nudda henni á ennið.

Alvöru konur: Taktu límónu og blandaðu henni við tekíla og salt og drekktu. Höfuðverkurinn hverfur sennilega ekki, en þér verður alveg sama.

F
ínar dömur : Ef þú setur sykurpúða í botninn á vöffluformi, þá lekur ísinn ekki í gegnum það.

Alvöru konur: Sjúgðu bara ísinn úr vöffluforminu. Þú liggur hvort eð er örugglega með fæturna upp í loft í sófanum og borðar hann.

Fínar dömur : Þú getur komið í veg fyrir að kartöflur spíri með því að setja epli í pokann með þeim.

Alvöru konur: Kauptu karföflumúspakka, hann geymist í heilt ár í eldhússkápnum.

Fínar dömur: Kökur fá jafna, slétta áferð ef þú penslar þær með eggjahvítu áður en þær fara í ofninn.

Alvöru konur: Betty Crocker segir ekkert til um penslun á kökunni. Slepptu þessu bara .

Fínar dömur : Ef þú átt erfitt með að opna sultukrukku er gott að setja á sig gúmmíhanska. Þannig færðu betra grip. .

Alvöru konur: Biddu myndarlega, ríka og einhleypa nágrannann um að opna krukkuna!

Fínar dömur: Ekki hella afgangs rauðvíni. Það má frysta í ísmolabakka og nota í sósur seinna.

Alvöru konur: Hvað er afgangs rauðvín?


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 11:10:04 / stina

Páskarnir búnir og sumarið vonandi að fara koma:)

Jæja, þá er ég komin aftur! Ég ætla að vona að ég sé ekki sú eina sem er búnað borða yfir mig af páskaeggjum og mat. Það er náttúrulega bara hættulegt að fara til ömmu og afa í mat á páskadag. Það sem maður getur borðað yfir sig af hamborgarahrygg og heimatilbúnum  ís með EKTA karmellusósu sem amma tóta býr til...jammí.....og ég sem ætlaði að missa nokkur kíló fyrir brúðkaupið..,,spurning um að svelta sig þangað til;)  það er allavega bara gott að páskarnir eru bara einu sinni a ári:)!!!!!!!!!!!!

Við Kiddi vorum að fatta hvað það er stutt í brúðkaupið! bara 3 mánuðir og hellingur eftir að gera finnst mér! reyndar reddast allt saman held ég bara svo lengi sem báðir segja JÁ er allt hitt bara aukaatriði;);) Hlakka svo til........þetta er svo skrítið............ég get bráðum sagt "já við hjónin fórum um daginn og eitthvað.." vá hvað ég er að verða gömul;) Ísak er að ótrúlega spenntur, alltaf þegar við sjáum kirkjuna segir hann að hann sé að fara verða kóngur sem heldur á hringunum þegar við giftum okkur öll þarna;) hann vill hafa kórónu og skikkju:) ótrúlega mikið krútt.....

Við erum orðin fjagra manna fjölskylda núna! eigum einn strák og eina stelpu, eini munurinn er sá að ísak er ekki hafður í búri og er ekki eins loðinn.....heheh......vorum að kaupa okkur rússneskan dvergahamstur.....hún heitir snúlla........mér þykir reyndar ekkert rosalega vænt um hana þegar hún byrjar klukkan 02:00 á næturnar að hjóla, það heyrist ekkert lítið í þvi. Neinei,hún er voða mikið rassgat. vona bara að kiddi drekki henni ekki eins og hann gerði við Nemó og Sambó, greyið gullfiskarnir.....(efa það reyndar)

Jæja, held ég sé búnað skrifa allt of mikið núna, þvílíkt afrek hjá mér;)............................... hey, í næstu viku er ég að fara dimmitera þannig að ekkert vera mikið á ferli þann dag;) bæ í bili:):):)


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 23:41:48 / stina

KOMINN TIMI TL

Jæja, ég held að það sé kominn tími á smá skriftir hérna! Er búin að vera alltof löt til að skrifa eitthvað, samt alveg helling að gerast hjá mér. Hef bara ekki haft tíma til að setjast niður og skrifa... Kannski prison break sé eitthvað að skemma fyrir líka, við kiddi horfðum á alla 1 seríu á rúmri viku, áttum okkur ekkert líf, og ómg hvað maður verður húkkt á  þessu!

Ég er byrjuð í skólanum á fullu, bara gaman. Skólinn hálfan daginn og vinna svo hinn helminginn af deginum. Er í ótrúlega skemmtilegum bekk, og já, aðeins of skemmtilegt bekkjarparty um daginn.....sem betur fer var ég ekki með myndavélina mína;) Svo er annað party fljótlega, verðum að hita upp fyrir dimison (veit ekkert hvernig þetta er skrifað) maður verður nú að hafa ágætt þol þá. veitir ekki af að byrja núna að æfa sig;) Það er svo skrítið að vera fara útskrifast í vor, held ég eigi eftir að sakna þess að fara ekki oftar í iðnskólann (hver hefði getað trúað því að ég ætti eftir að sakna skóla) hehe. Það er reyndar bara gaman að vera fara útskrifast:)

Það verður nóg að gera hjá mér frá og með maí til enda júlí.

Burtfarapróf úr skólanum, útskriftarveisla, kiddi afmæli, sveinspróf, sumarfrí, undirbúningur fyrir brúðkaupið, ég afmæli, BRÚÐKAUPIÐ :) og já, held mér eigi ekki eftir að leiðast.... óskalisti í brúðargjöf: mánuður í heilsuhæli Hveragerði;)

Það er alveg ótrúlegt hvað það er margt sem þarf að redda og undirbúa fyrir brúðakaup, þetta er reyndar bara gaman, búnað redda svona því helsta, allavega er kjólinn í vinnslu hjá saumakonu, það er náttla aðal atriðið(nei, spaug) já ef einhver er með hugmynd af einhverju skemmtilegu fyrir brúðkaupið endilega tjáið ykkur;)

Út í allt annað, ég var að eignast lítinn frænda um daginn, bara sætur, á reyndar eftir að sjá litla lubban:) hann er á vöku ennþá, spurning um að fara ekkert í bráð, ætli það fari ekki að klingja í einhverju;) nei segi sona. Til hamingju með hann Ragga og Júlli:)

Svo var Ísak Þór að fótbrjóta sig fyrir viku, eða eins og hanns segir "ég krumpaði löppina i rennibrautinni" Er algjört krútt með gifs frá táslum upp í nára, eldrautt:) Losnar við það vonandi eftir 2 vikur. Hann er samt byrjaður að hlaupa, nennir ekkert að vera með einhverjar helv... hækjur sem eru bara fyrir honum:)

Jæja nóg komið af blaðri, búnað slá metið mitt núna í skriftum þetta árið, þangað til næst:)

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 13:55:01 / stina

:)

ÉG ER ALVEG AÐ FARA SKRIFA ROSALEGA FÆRSLU, NENNI ÞVÍ BARA EKKI NÚNA;) ÞAR TIL NÆST...........bæó


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3