stína

sælt veri fólkið;)

20.05.2007 14:18:19 / stina

Jibbí;)

Það er bara erfitt að vakna og koma sér á fætur. Ligg upp í rúmi með tölvuna og kidda steinsofandi við hliðin á mér. Vil ekki líta í spegil! Lít öruglega út eins og ófreskja! komum aðeins of seint heim, er orðin alltof gömul í sona djamm;)hehhehhe;) Útskriftin var semsagt í gær, bara stuð. Fyrst veisla hjá afa í grænagarði, sem var ótrúlega gaman, og svo fórum við niðrí bæ á Hressó til Laufeyjar:) allir í þvilíku stuði þar. held ég hafi fengið sona spennufall eða eitthvað því allt í einu var ég alveg að sofna um 3 leytið. Aldrei verið svona þreytt. en þegar við komum heim um 5-6 var ég allt í einu vöknuð aftur, mjög spes! En já, ég var ekkert smá ánægð með einkannirnar mínar;););););)

Fékk, 9 og 9 og 9 og 9 og 9 og 9 og 9 og svo 10 :):):):):):) Semsagt sjö níur og eina 10:) aldrei fengið svona góðar einkannir, jibbí...........

Varð bara aðeins að monta mig:) en jæja, ætla að koma mér á fætur og ná í sakka litla:) bless í bili:)


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 00:47:59 / stina

Loksins, loksins ;)

Vúhú, er loksins er ég að fara klára hárgreiðsluna:) Búin með öll próf í skólanum en á reyndar aðal prófin eftir, SVEINSPRÓFIN! Búnað ganga bara ágætlega í skólaprófunum. Útskriftin á morgun, smá stress í gangi en ég veit að ég er ekki búnað falla í neinu, bara spurning hvaða einkannir maðir fær:/ Kemur allt í ljós, þannig að ef ég skrifa ekkert um einkannirnar um helgina þá, já, hehehemm....... sjáum bara til:) Held smá veislu í skóginum hans afa, vona að það verði bara gott veður:)

Búnað vera þvílíkt mikið að gera undanfarið, prófin búnað vera á fullu, sá um stofuna í 10 daga, alltaf að fara í brúðarkjólamátun (ómg hvað kjóllinn verður flottur) og allur undirbúningurinn fyrir brúðkaupið alveg að verða búinn, allavega það helsta. Og já, það næsta á dagskrá  sveinspróf, sumarfrí og  brúðkaup:) Bara spennt yfir þessu öllu saman:) Svo er zaza að fara koma heim um mánaðarmótin:):):):):):) Best að fara byrja kæla ölið, tími til kominn að venja hana aftur við einn kaldan, þetta coctail sull er ekkert gott til lengdar;) heheh.............

Er búnað vera baka í gærkvöldi og allt kvöld og svei mér þá ég held að hrærivélin hennar ömmu Stínu (sem ég fékk lánaða) býr yfir einhverjum töframætti:) Það er bara allt saman búnað heppnast ágætlega í bakstrinum sem er alveg lygilegt, því miður erfði ég ekki myndaskapinn í eldhúsinu frá ömmum mínum, en æfingin skapar meistarann;) Svo á maður náttla so góða mömmu sem er búnað vera græja helling fyrir veisluna og sauma á mig, kiss kiss fyrir það mútta;) og náttla tengdó með sína snilldar brauðtertu;)

Jæja, er að pæla í að fara koma mér í háttinn, stór dagur á morgun:) vona samt að enginn steli kökunum mínum af svölunum!!!!!!!! góða nótt


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 22:28:28 / stina

Bara snilld;)

Þekkir þú fínar dömur og alvöru konur í sundur?

Fínar dömur: Ef þú hefur ofsaltað matinn sem þú ert að elda, þá skaltu setja kartöflu í pottinn. Hún dregur saltið í sig.

Alvöru konur: Ef þú ofsaltaðir matinn er það bara assgoti pirrandi.

Fínar dömur: Það er auðvelt að lækna höfuðverk með því að skera límónu í
sundur og nudda henni á ennið.

Alvöru konur: Taktu límónu og blandaðu henni við tekíla og salt og drekktu. Höfuðverkurinn hverfur sennilega ekki, en þér verður alveg sama.

F
ínar dömur : Ef þú setur sykurpúða í botninn á vöffluformi, þá lekur ísinn ekki í gegnum það.

Alvöru konur: Sjúgðu bara ísinn úr vöffluforminu. Þú liggur hvort eð er örugglega með fæturna upp í loft í sófanum og borðar hann.

Fínar dömur : Þú getur komið í veg fyrir að kartöflur spíri með því að setja epli í pokann með þeim.

Alvöru konur: Kauptu karföflumúspakka, hann geymist í heilt ár í eldhússkápnum.

Fínar dömur: Kökur fá jafna, slétta áferð ef þú penslar þær með eggjahvítu áður en þær fara í ofninn.

Alvöru konur: Betty Crocker segir ekkert til um penslun á kökunni. Slepptu þessu bara .

Fínar dömur : Ef þú átt erfitt með að opna sultukrukku er gott að setja á sig gúmmíhanska. Þannig færðu betra grip. .

Alvöru konur: Biddu myndarlega, ríka og einhleypa nágrannann um að opna krukkuna!

Fínar dömur: Ekki hella afgangs rauðvíni. Það má frysta í ísmolabakka og nota í sósur seinna.

Alvöru konur: Hvað er afgangs rauðvín?


» 6 hafa sagt sína skoðun